28. Desember 2023

Andabringur á áramótaborðið

Það eru sífellt fleiri sem vilja breyta til um áramótin og andabringur eru einstaklega góður kostur. Ekki er verra hversu einfalt er að útbúa þær. 

Hráefni:

andabringur
salt
pipar
1 appelsína

Aðferð:

Hreinsið burt sinina undir bringunni og skerið rendur í fituna en passið vel að fara ekki í kjötið.

Kryddið til með salti og pipar.

Bringurnar eru lagðar með fituhlið niður á kalda pönnu. Kveikið á hellunni á miðlungshita. Það er gert svo að fitan bráðni rólega og stökk húð myndist.

Þegar fitan er orðin stökk er bringunni snúið við og brúnað undir.

Setjið bringurnar í 180 gráðu heitan ofn í átta mínútur og leyfið að hvíla í fimm mínútur áður en þær eru skornar niður.

Skrælið appelsínu, skerið í báta, hreinsið himnuna frá og skreytið réttinn.