Viðskiptaskilmálar og persónuverndarstefna
1. Um viðskiptaskilmálana
1.1. Þetta skjal inniheldur þá viðskiptaskilmála (hér nefndir viðskiptaskilmálarnir) sem gilda þegar viðskiptavinur okkar (hér nefndur viðskiptavinur eða þú) kaupir vörur í Sérvöruverslun Hagkaups (hér nefnd verslunin) en hún er vefverslun, þ.e. verslun sem er rekin á Vefnum. Nálgast má verslunina á vefsetri sem er aðgengilegt á vefslóðinni www.hagkaup.is/snyrtivara og netfang verslunarinnar er snyrtivara@hagkaup.is. Verslunin er rekin af okkur, Hagkaupi, kt. 430698-3549 (hér nefnt seljandi eða við), Skútuvogi 5, 104 Reykjavík, s. 563-5000. Hagkaup er smásölufyrirtæki í eigu félagsins Hagar verslanir ehf., kt. 470710-0390.
1.2. Fjallað er í sérstöku skjali (hér nefndir persónuverndarskilmálarnir) um hvaða persónuupplýsingar við vinnum með í versluninni, tilgang vinnslunnar og heimildir fyrir henni, miðlun persónuupplýsinga og geymslutíma þeirra, auk ýmissa annarra atriða um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við verslunina.
1.3. Til þess að geta keypt vörur í versluninni þarft þú áður að staðfesta að hafa kynnt þér vandlega og samþykkt bæði viðskiptaskilmálana og persónuverndarskilmálana. Vakin er sérstök athygli á því að þó að gögn um viðskipti viðskiptavina í versluninni séu geymd í upplýsingakerfum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) þá eru sumir þeirra þjónustuaðila sem fá aðgang að þeim kerfum staðsettir fyrir utan EES og því þarf hver viðskiptavinur fyrir sig að samþykkja ótvírætt og sérstaklega þá lýsingu á vinnslu persónuupplýsinga sem kemur fram í persónuverndarskilmálunum ef þeir vilja eiga viðskipti við verslunina.
1.4. Aðgangur að versluninni er eingöngu heimill einstaklingum sem eru 18 ára eða eldri og eru fjárráða..
1.5. Notkun verslunarinnar er með öllu óheimil nema í samræmi við ákvæði viðskiptaskilmálanna.
1.6. Allar tilraunir til að brjóta („hakka“) eðlilega virkni vefverslunarinnar, til dæmis til að komast fram hjá aðgangshindrunum, fara fram fyrir röð í bið eftir vinsælli vöru, skerða aðgengi að versluninni, breyta verðum eða vöruframboði í henni eða safna upplýsingum um fjölda af vörum í einu („skrapa“), eru með öllu óheimilar.
1.7. Þér er skylt að varðveita aðgangs-/lykilorð að aðgangi þínum að versluninni þannig að óviðkomandi aðili geti ekki komist yfir það. Öll notkun aðgangs þíns að versluninni skal vera alfarið á þína ábyrgð. Ef þig grunar að óviðkomandi hafi komist yfir aðgangs-/lykilorð að aðgangi þínum að versluninni ber þér að tilkynna það án tafar á netfang verslunarinnar, sbr. 1.1 hér að framan.
1.8. Þú berð ábyrgð á að uppfæra skráningu í vefversluninni hverju sinni á netfangi þínu og heimilisfangi svo við getum átt í samskiptum um kaup þín og, þegar um heimsendingu er að ræða, sent þér vörur á rétt heimilisfang.
1.9. Þessi útgáfa viðskiptaskilmálanna gildir um kaup í versluninni sem eiga sér stað eftir 24. nóvember 2021.
1.10. Viðskiptaskilmálarnir eru ávallt aðgengilegar á vefsíðu okkar. Við áskiljum okkur rétt til að breyta þeim án fyrirvara. Í skilmálunum kemur ávallt fram hvenær núgildandi útgáfa tók gildi til þess að þú getir séð hvort þeir hafi breyst frá því að þú samþykktir þá síðast þegar þú notaðir verslunina.
2. Viðskipti við verslunina
2.1. Við birtum í versluninni eins greinargóðar lýsingar og okkur er unnt á þeim vörum sem eru þar til sölu og eiginleika þeirra. Við birtum einnig eftir því sem tilefni gefst lýsandi ljósmyndir af vörunum.
2.2. Ef þú kaupir vöru í verslun okkar og staðfestir kaupin með því að gefa upp gildan greiðslumiðil sem við tökum við á hverjum tíma, svo sem greiðslukort sem skuldfærsla tekst á fyrir söluverði og eftir atvikum sendingarkostnaði, þá kemst þar með á samningur milli þín og okkar um kaup á þeirri vöru sem svarar til þess vörunúmers sem þú valdir í versluninni. Skuldfært söluverð inniheldur virðisaukaskatt og allan annan aukakostnað okkar af að bjóða þér vöruna til kaups en að auki er skuldfært fyrir sendingarkostnaði, þar sem hann á við (sjá hér að neðan).
2.3. Um ábyrgð á seldum vörum og viðskipti okkar að öðru leyti gilda lög um neytendakaup, nú nr. 48/2003 og lög um neytendasamninga, nú nr. 16/2016, að teknu tilliti til skilmála þessara.
2.4. Okkur er ekki skylt að afhenda eða senda þér vöru fyrr en greiðsla hefur borist, t.d. að skuldfærsla fyrir kaupunum hefur tekist á uppgefið greiðslukort þitt.
2.5. Okkur er heimilt að falla frá kaupum ef mistök hafa orðið í skráningu vöru, svo sem ef rangt verð birtist í versluninni eða boðin er þar til sölu vara sem ekki er lengur til hjá okkur.
2.6. Við berum ekki ábyrgð á að vara sem þú kaupir í versluninni: henti í einhverjum ákveðnum tilgangi, til dæmis sem þú ætlaðir að nota vöruna í; hafi einhverja tiltekna eiginleika til að bera, svo sem varðandi endingu, sem ekki koma sérstaklega fram í lýsingu á vörunni í versluninni; eða verði afhent í einhverjum sérstökum umbúðum sem ætlaðar eru til að varðveita eða vernda vöruna.
2.7. Þú getur komið og sótt í verslunina okkar í verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi, þér að kostnaðarlausu, þær vörur sem þú hefur keypt í versluninni eða fengið þær sendar heim á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Ef þú sækir ekki innan 14 daga þær vörur sem þú tilkynntir okkur að þú myndir sækja þá lítum við svo á að þú hafir fallið frá kaupunum og munum bakfæra þau.
2.8. Ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur sem þú kaupir hjá okkur þá kaupum við ekki tryggingar vegna flutnings þeirra til þín. Við berum því enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Við hvetjum þig því til að gæta vel að því að sumar vörur geta spillst, svo sem vegna hitabreytinga, í flutningi eða ef þær eru skildar eftir til afhendingar, t.d. fyrir utan heimili. Í versluninni koma fram upplýsingar um þau flutningafyrirtæki sem hverju sinni annast útkeyrslu á vörunum og hægt er að velja um. Bæði er hægt að velja að fá sent á tilteknar afgreiðslustöðvar, þar á meðal svonefnd póstbox, eða heim að dyrum. Jafnan eru vörur afhentar samdægurs á virkum dögum ef keypt er fyrir kl. 12:00 en vörur sem keyptar eru eftir þann tíma á föstudögum eru jafnan keyrðar út á mánudegi. Þó að stefnt sé að afhendingu innan sólarhrings getur það dregist, svo sem vegna óvenjumikils álags eða annarra óviðráðanlegra ástæðna. Sendingarkostnaður er 590 kr. á afhendingarstöð og 1.290 kr. í heimkeyrslu fyrir hver vörukaup innan höfuðborgarsvæðisins en 1.090 kr. fyrir afhendingarstöðvar og 1.990 kr. í heimkeyrslu fyrir sendingar utan þess. Ef verslað er fyrir meira en 12.900 kr. fellur sendingarkostnaður á afhendingarstöð eða í póstbox niður, en ef viðskiptavinur vill fá slíka sendingu heim að dyrum greiðir viðskiptavinur 800 kr.
3. Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
3.1. Eftir að þú hefur keypt hjá okkur fatnað eða sérvöru, t.d. leikföng, búsáhöld eða snyrtivörur, hefur þú 14 daga til að endursenda hana eða skila henni í einhverja verslun okkar, að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð, henni sé skilað í fullkomnu ástandi í upprunalegum og óskemmdum umbúðum, að innsigli hafi ekki verið rofið og að greiðslukvittun fylgi með. Ekki er þó hægt að skila matvöru, hreinlætisvöru, tímaritum, útsöluvöru eða öðrum vörum sem lög undanskilja skilarétti, sbr. nú 18. gr. laga um neytendasamninga.
3.2. Ef þú ákveður að endursenda vöru sem heimilt er að skila þá berð þú ábyrgð á og kostnað af því nema þú hafir fengið ranga eða skemmda vöru afhenta. Endursendingar á vörum verða að berast okkur á póstfangið Hagkaup, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, innan 14 daga frá móttöku vörunnar hjá þér.
3.3. Endurgreiðslur eru framkvæmdar með því að færa fjárhæð jafn háa verði hinnar skiluðu vöru aftur inn á sama greiðslumiðil, svo sem greiðslukort og greitt var með fyrir vöruna eða að öðrum kosti með því að gefa út inneignarnótu fyrir fjárhæðinni og senda hana á skráð netfang viðskiptavinar.
4. Lokun reiknings viðskiptavinar
4.1. Skráning þín sem viðskiptavinar verslunarinnar gildir ótímabundið, farir þú að viðskiptaskilmálunum. Ef þú vilt segja upp viðskiptum þínum þá gerir þú það með því að loka reikningi þínum á vefsetri verslunarinnar.
4.2. Okkur er heimilt að segja viðskiptum upp án fyrirvara og loka reikningi þínum án sérstakrar tilkynningar ef þú brýtur gegn viðskiptaskilmálunum. Þá áskiljum við okkur rétt til að krefjast skaðabóta vegna tjóns sem leiðir af brotum á þeim.
5. Gildandi lög og samningsvarnarþing
5.1. Um viðskiptaskilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi dómsmál um ágreining milli aðila í tengslum við þá skal það mál rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
5.2. Seljanda er allt að einu heimilt að leita aðstoðar dómstóla og stjórnvalda hvar í heimi sem er til framkvæmdar aðfarargerða eða annarra sambærilegra ráðstafana til að tryggja réttindi sín og fá skyldur samkvæmt viðskiptaskilmálunum uppfylltar.
Um þetta skjal
Her er að finna þá viðskiptaskilmála sem gilda þegar þú kaupir matvörur í vefverslun Hagkaups. Við erum Hagkaup, leiðandi smásölufyrirtæki sem býður breitt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, fatnaði, snyrtivöru, húsbúnaði og tómstundavöru. Hagkaup rekur tíu verslanir, auk þessarar vefverslunar. Kt. Hagkaups er 430698-3549 og skrifstofa þess er í Skútuvogi 5, 104 Reykjavík. Hagkaup er í eigu Hagar verslanir ehf kt. 470710-0390 vsknr. 106033
Viðskipti okkar
Við skuldbindum okkur til að birta í vefverslun okkar eins greinargóðar lýsingar og okkur er unnt á þeim vörum sem eru þar til sölu og birta eftir föngum einnig lýsandi ljósmyndir af þeim. Hverri vörulýsingu fylgir vörunúmer sem ræður því hvaða vara er seld hverju sinni. Verði mistök í verðmerkingu vöru áskiljum við okkur rétt til að selja hana ekki á því verði.
Ef þú kaupir vöru í vefverslun okkar og staðfestir kaupin með því að greiða fyrir þau með Netgíró eða Síminn Pay greiðslulausnunum eða gefa upp gilt greiðslukort þitt, sem skuldfærsla tekst á fyrir söluverði og eftir atvikum sendingarkostnaði, þá kemst þar með á samningur milli þín og okkar um kaup á þeirri vöru sem svarar til þess vörunúmers sem þú valdir í vefversluninni. Skuldfært söluverð inniheldur virðisaukaskatt og allan annan aukakostnað okkar af að bjóða þér vöruna til kaups, að meðtöldum sendingarkostnaði, þar sem hann á við (sjá hér að neðan). Ávallt skal greitt afgreiðslugjald sem er 990 kr. fyrir hver vörukaup.
Um ábyrgð á seldum vörum og viðskipti okkar að öðru leyti gilda lög um neytendakaup, nú nr. 48/2003, auk laga um neytendasamninga, nú nr. 16/2016, að teknu tilliti til skilmála þessara.
Okkur er ekki skylt að afhenda eða senda þér vöru fyrr en skuldfærsla fyrir kaupunum hefur tekist á uppgefið greiðslukort þitt.
Við berum ekki ábyrgð á að vara sem þú kaupir í vefversluninni:
- henti í einhverjum ákveðnum tilgangi, til dæmis sem þú ætlaðir að nota vöruna í,
- hafi einhverja tiltekna eiginleika til að bera svo sem varðandi endingu sem ekki koma sérstaklega fram í lýsingu á vörunni í vefversluninni eða
- verði afhent í einhverjum sérstökum umbúðum sem ætlaðar eru til að varðveita eða vernda vöruna.
Matvörupantanir á höfuðborgarsvæðinu eru afreiddar heim að dyrum ca. kl.17-19 með póstinum, en jafnframt geta viðskiptavinir okkar sótt matarkörfuna sína í Hagkaup Smáralind. Ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur sem þú kaupir hjá okkur þá kaupum við ekki tryggingar vegna flutnings þeirra til þín. Sendingakostnaður er 1490 kr. Fyrir hver matvöruvörukaup.
Leikfangapantanir er hægt að fá sent með póstinum hvert á land sem er. Þrír afhendingarmöguleikar eru í boði 1) sent í póstbox 937 kr. 2) sent á pósthús 1026 kr. 3)sent heim að dyrum 1420 kr. Ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur sem þú kaupir hjá okkur þá kaupum við ekki tryggingar vegna flutnings þeirra til þín. Leikfangapantanir eru sendar eins fljótt og auðið er en þær geta dregist, svo sem vegna óvenjumikils álags eða óviðráðanlegra ástæðna. Ef verslað er fyrir 15000 kr. eða meira fellur sendingakostnaður niður.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Eftir að þú hefur keypt hjá okkur fatnað eða sérvöru (t.d. leikföng, búsáhöld eða snyrtivörur þar sem innsigli hefur ekki verið rofið) hefur þú 14 daga til að skila henni í einhverja verslun okkar, að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Ekki er þó hægt að skila nærfatnaði, sokkum, sokkabuxum þar sem innsigli hefur verið rofið, matvöru, hreinlætisvöru eða útsöluvöru. Ef þú ákveður að endursenda vöru sem heimilt er að skila þá berð þú ábyrgð á og kostnað af því nema þú hafir fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
Endursendingar á vörum verða að fara fram innan 14 daga frá móttöku og þurfa að berast á þetta heimilisfang: Hagkaup, Hagasmára 1, 201 Kópavogi.
Varnarþing
Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir héraðsdóm Reykjavíkur.
Þessi útgáfa skilmálanna er frá 3. apríl 2020 og gildir um kaup í vefversluninni sem eiga sér stað eftir það.
Um þetta skjal
Her er að finna þá viðskiptaskilmála sem gilda þegar þú kaupir leikföng í vefverslun Hagkaups (leikföng). Við erum Hagkaup, leiðandi smásölufyrirtæki sem býður breitt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, fatnaði, snyrtivöru, húsbúnaði og tómstundavöru. Hagkaup rekur tíu verslanir, auk þessarar vefverslunar. Kt. Hagkaups er 430698-3549 og skrifstofa þess er í Skútuvogi 5, 104 Reykjavík. Hagkaup er í eigu Hagar verslanir ehf kt. 470710-0390 vsknr. 106033
Viðskipti okkar
Við skuldbindum okkur til að birta í vefverslun okkar eins greinargóðar lýsingar og okkur er unnt á þeim vörum sem eru þar til sölu og birta eftir föngum einnig lýsandi ljósmyndir af þeim. Hverri vörulýsingu fylgir vörunúmer sem ræður því hvaða vara er seld hverju sinni. Verði mistök í verðmerkingu vöru áskiljum við okkur rétt til að selja hana ekki á því verði.
Ef þú kaupir vöru í vefverslun okkar og staðfestir kaupin með því að greiða fyrir þau með Netgíró eða Síminn Pay greiðslulausnunum eða gefa upp gilt greiðslukort þitt, sem skuldfærsla tekst á fyrir söluverði og eftir atvikum sendingarkostnaði, þá kemst þar með á samningur milli þín og okkar um kaup á þeirri vöru sem svarar til þess vörunúmers sem þú valdir í vefversluninni. Skuldfært söluverð inniheldur virðisaukaskatt og allan annan aukakostnað okkar af að bjóða þér vöruna til kaups, að meðtöldum sendingarkostnaði, þar sem hann á við (sjá hér að neðan). Ávallt skal greitt afgreiðslugjald sem er 990 kr. fyrir hver vörukaup.
Um ábyrgð á seldum vörum og viðskipti okkar að öðru leyti gilda lög um neytendakaup, nú nr. 48/2003, auk laga um neytendasamninga, nú nr. 16/2016, að teknu tilliti til skilmála þessara.
Okkur er ekki skylt að afhenda eða senda þér vöru fyrr en skuldfærsla fyrir kaupunum hefur tekist á uppgefið greiðslukort þitt.
Við berum ekki ábyrgð á að vara sem þú kaupir í vefversluninni:
- henti í einhverjum ákveðnum tilgangi, til dæmis sem þú ætlaðir að nota vöruna í,
- hafi einhverja tiltekna eiginleika til að bera svo sem varðandi endingu sem ekki koma sérstaklega fram í lýsingu á vörunni í vefversluninni eða
- verði afhent í einhverjum sérstökum umbúðum sem ætlaðar eru til að varðveita eða vernda vöruna.
Matvörupantanir á höfuðborgarsvæðinu eru afreiddar heim að dyrum ca. kl.17-19 með póstinum, en jafnframt geta viðskiptavinir okkar sótt matarkörfuna sína í Hagkaup Smáralind. Ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur sem þú kaupir hjá okkur þá kaupum við ekki tryggingar vegna flutnings þeirra til þín. Sendingakostnaður er 1490 kr. Fyrir hver matvöruvörukaup.
Leikfangapantanir er hægt að fá sent með póstinum hvert á land sem er. Þrír afhendingarmöguleikar eru í boði 1) sent í póstbox 937 kr. 2) sent á pósthús 1026 kr. 3)sent heim að dyrum 1420 kr. Ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur sem þú kaupir hjá okkur þá kaupum við ekki tryggingar vegna flutnings þeirra til þín. Leikfangapantanir eru sendar eins fljótt og auðið er en þær geta dregist, svo sem vegna óvenjumikils álags eða óviðráðanlegra ástæðna. Ef verslað er fyrir 15000 kr. eða meira fellur sendingakostnaður niður.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Eftir að þú hefur keypt hjá okkur fatnað eða sérvöru (t.d. leikföng, búsáhöld eða snyrtivörur þar sem innsigli hefur ekki verið rofið) hefur þú 14 daga til að skila henni í einhverja verslun okkar, að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Ekki er þó hægt að skila nærfatnaði, sokkum, sokkabuxum þar sem innsigli hefur verið rofið, matvöru, hreinlætisvöru eða útsöluvöru. Ef þú ákveður að endursenda vöru sem heimilt er að skila þá berð þú ábyrgð á og kostnað af því nema þú hafir fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
Endursendingar á vörum verða að fara fram innan 14 daga frá móttöku og þurfa að berast á þetta heimilisfang: Hagkaup, Hagasmára 1, 201 Kópavogi.
Varnarþing
Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir héraðsdóm Reykjavíkur.
Þessi útgáfa skilmálanna er frá 3. apríl 2020 og gildir um kaup í vefversluninni sem eiga sér stað eftir það.
1. Um þetta skjal
1.1. Í þessu skjali (hér nefndir persónuverndarskilmálarnir) er að finna upplýsingar um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram þegar þú kaupir vörur í vefversluninni Sérvöruverslun Hagkaups (hér nefnd verslunin). Verslunin er rekin af okkur, Hagkaupi, kt. 430698-3549, Skútuvogi 5, 104 Reykjavík, s. 563-5000. Hagkaup er ábyrgðaraðili allrar vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við verslunina og er smásölufyrirtæki í eigu félagsins Hagar verslanir ehf., kt. 470710-0390.
1.2. Í persónuverndarskilmálunum er fjallað um hvaða persónuupplýsingar við vinnum með í versluninni, tilgang vinnslunnar og heimildir fyrir henni, miðlun persónuupplýsinga og geymslutíma þeirra, auk ýmissa annarra atriða um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við verslunina.
2. Tegundir persónuupplýsinga, tilgangur vinnslunnar og heimildir fyrir henni
2.1. Til þess að við getum afgreitt þig í versluninni og veitt þér þá þjónustu sem boðið er upp á eða þú samþykkir sérstaklega að þiggja þurfum við að vinna með margs konar persónuupplýsingar, í ýmiss konar tilgangi og á grundvelli ólíkra heimilda. Þetta eru þær tegundir persónuupplýsinga sem við öflum beint frá þér en við öflum engra upplýsinga um þig annars staðar frá:
2.2. Tengiliðaupplýsingar, þ.e. nafn, heimilisfang og netfang: Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að hægt sé að tryggja að ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur þá sendum við þær á réttan stað, til að gefa okkur kost á að eiga í samskiptum um vörukaupin og til að tryggja að réttur viðskiptavinur sé skráður sem kaupandi, svo sem vegna reikningagerðar og ef kemur til vöruskila. Þá vinnum við einnig með þær vegna beinnar markaðssetningar ef þú hefur óskað eftir að fá almenn tilboð frá okkur eða tilboð sem eru sniðin að þér. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin, sem og vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur, einkum vegna laga um neytendakaup, virðisaukaskatt og bókhald, auk þess að vera nauðsynleg til að veita þér framangreinda tilboðsþjónustu hafir þú óskað eftir að fá að njóta hennar. Við leggjum okkur fram um að lágmarka þær persónuupplýsingar sem við vinnum með um þig og af þeim sökum vinnum við ekki með upplýsingar um kennitölu þína.
2.3. Greiðsluupplýsingar: Við vistum aldrei greiðslukortanúmer þitt heldur gefum þér, þegar kemur að því að greiða fyrir vörur og ef þú notar til þess greiðslukort, samband við færsluhirði þar sem þú slærð sjálf inn greiðslukortanúmer þitt og aðrar upplýsingar um það greiðslukort sem þú notar. Í staðinn fáum við frá færsluhirðinum staðfestingu á að skuldfærsla á greiðslukortið hafi tekist og þær upplýsingar vinnum við með í bókhaldslegum tilgangi. Því er okkur nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin og vegna lagaskyldu okkar, einkum samkvæmt lögum um bókhald.
2.4. Upplýsingar um vörukaup þín hjá okkur, þ.e. hvaða vörur þú keyptir, hvenær og fyrir hvaða upphæð: Við vinnum með þessar upplýsingar, eins og með tengiliðaupplýsingarnar, sbr. hér að framan, í þeim tilgangi að geta selt og sent þér viðkomandi vörur og til að geta staðið við lagaskyldur okkar, svo sem varðandi vöruskil og endurgreiðslur. Þá bjóðum við þér upp á að við berum saman upplýsingar um þín vörukaup við aðra sölu á vörum í versluninni til að senda þér auglýsingar og gera þér tilboð sem sniðin eru að þér. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns og okkar, vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur og á grundvelli samþykkis, ef þú veitir okkur slíkt.
2.5. Auk þess að vinna með persónuupplýsingar notum við margs konar ópersónugreinanlegar upplýsingar til að starfrækja verslunina, t.d. tölfræðilegar upplýsingar um hvenær viðskiptavinir okkar versla hvaða vörur o.s.frv. Engar slíkar upplýsingar er hægt að rekja til tiltekins viðskiptavinar heldur er einungis um að ræða ópersónugreinanlegar upplýsingar um hópa viðskiptavina.
3. Miðlun persónuupplýsinga
3.1. Þeim persónuupplýsingum um þig sem við vinnum með vegna kortaútgáfunnar miðlum við ekki til þriðja aðila, svo sem til utanaðkomandi vinnsluaðila til dæmis til geymslu eða bókhaldsþjónustu, nema í eftirtöldum tilvikum:
3.2. Það upplýsingakerfi sem við notum til að reka verslunina er rekið af vinnsluaðila okkar og hýst, ásamt öllum upplýsingum, innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Hins vegar er vakin sérstök athygli á því að þeir undirvinnsluaðilar sem veita okkur notendaþjónustu varðandi rekstur kerfisins eru sumir hverjir staðsettir fyrir utan EES en geta fengið aðgang að kerfinu til að aðstoða okkur varðandi atriði sem koma upp við rekstur kerfisins. Þessu fylgir mögulega áhætta vegna þess að þessir undirvinnsluaðilar kunna að vera staðsettir í ríkjum, einkum Bandaríkjunum, þar sem ekki liggur fyrir ákvörðun Evrópusambandsins um að vernd persónuupplýsinga sé fullnægjandi og viðeigandi verndarráðstafanir hafa ekki verið gerðar til að tryggja þær og vinnslu þeirra. Þess vegna er sérstaklega óskað eftir ótvíræðu samþykki þínu, sbr. ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nú a)-lið 1. mgr. 49. gr. laga nr. 90/2018, fyrir þeirri lýsingu á vinnslu persónuupplýsinga sem kemur fram í persónuverndarskilmálunum þessum, ef þú vilt eiga viðskipti við verslunina.
3.3. Bókhaldsgögn eru afhent innlendum endurskoðendum okkar eftir því sem þeir kunna að óska eftir lögum samkvæmt.
3.4. Við áskiljum okkur rétt til að hlíta fyrirmælum þar til bærra íslenskra dómstóla og eftirlitsstofnana um afhendingu gagna, þar á meðal þeirra sem kunna að innihalda persónuupplýsingar.
4. Geymslutími
4.1. Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað í og þeirri heimild sem vinnslan byggist á. Þannig geymum við tengiliðaupplýsingar þínar ásamt upplýsingum um samþykki fyrir beinni markaðssetningu á meðan þú ert skráður notandi verslunarinnar. Rétt er að ítreka að notendur geta afskráð sig hvenær sem er og lokað aðgangi sínum fyrirvaralaust.
4.2. Við vinnum með upplýsingar um vörukaup þín ásamt greiðsluupplýsingum í þann tíma sem okkur er skylt vegna ákvæða í lögum um bókhald í lögum, þ.e. nú í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.
5. Réttindi þín
5.1. Þar sem við vinnum, eins og kemur fram hér að framan, með persónuupplýsingar um þig þá hefur þú margs kyns réttindi sem mikilvægt er að þú fáir upplýsingar um:
5.2. Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd, sbr. nú 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018, Þá átt þú samkvæmt síðarnefndu lagagreininni rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú átt einnig rétt á að andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.
5.3. Þú getur hvenær sem er sent okkur fyrirspurn eða kvörtun vegna vinnslunnar, á netfangið personuvernd@hagar.is. Þá átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík og netfang hennar er postur@personuvernd.is.
6. Gildandi lög og samningsvarnarþing
6.1. Um viðskiptaskilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi dómsmál um ágreining milli aðila í tengslum við þá skal það mál rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
6.2. Þessi útgáfa persónuverndarskilmálanna er frá 30. nóvember 2021 og gildir um alla vinnslu sem á sér stað frá og með þeim degi.