
22. Október 2026
Hagkaup og viðskiptavinir söfnuðu tveimur milljónum króna til styrktar Bleiku slaufunni.
Hagkaup tók þátt í Bleikum október með söfnun til styrktar Bleiku slaufunni, árlegu átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands. Með frábærri þátttöku viðskiptavina og mótframlagi Hagkaups söfnuðust alls tvær milljónir króna sem renna til mikilvægs starfs Krabbameinsfélagsins.
Dagana 1.–8. október gafst viðskiptavinum Hagkaups kostur á að leggja 500 krónur til söfnunarinnar við sjálfsafgreiðslukassa verslananna. Hagkaup lagði sömu upphæð á móti hverju framlagi og þannig tókst viðskiptavinum og fyrirtækinu í sameiningu að safna tveimur milljónum króna.
„Við erum ótrúlega þakklát fyrir þær frábæru viðtökur sem söfnunin fékk. Það er dýrmætt að sjá hversu margir viðskiptavinir okkar eru tilbúnir að leggja góðu málefni lið. Með því að sameina krafta okkar getum við látið gott af okkur leiða og stutt við það mikilvæga starf sem Krabbameinsfélagið sinnir,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups.
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands þar sem áhersla er lögð á að vekja athygli á krabbameinum hjá konum, mikilvægi forvarna og stuðningi við þau sem greinast og aðstandendur þeirra.
Hagkaup þakkar viðskiptavinum sínum innilega fyrir þátttökuna og fyrir að sýna enn á ný hversu miklu hægt er að áorka þegar margir leggja sitt af mörkum.
Saman látum við gott af okkur leiða 🩷