14. Júní 2023

Hagkaup opnar veisluþjónustu

Veisluréttir er ný þjónusta sem Hagkaup kynnir til leiks en um er að ræða nýja veisluþjónustu þar sem boðið er upp á bragðmikla og gómsæta veislurétti. Veislubakkar Veislurétta samanstanda af ljúffengum smábitum sem henta beint á veisluborðið.

Í boði er úrval rétta fyrir hvaða tækifæri sem er: Gómsæt kjúklingaspjót, brakandi tempura rækjur, vorrúllur, vefjur og sætir bitar sem eru alltaf vinsælir, ásamt Origami sushi og smurbrauðs úrvali. Pantað er í gegnum www.hagkaup.is og hægt er að sækja veisluna í Hagkaup Smáralind eða fá heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.


„Undanfarna mánuði höfum við unnið hörðum höndum að því búa til glæsilega veisluþjónustu og kynnum með stolti Veislurétti Hagkaups. Við höfum framleitt smurbrauð, salöt, vefjur og sushi á hverjum degi í nokkur ár og við vildum bjóða okkar viðskiptavinum upp á þá nýjung að geta pantað þessar frábæru vörur í veislubökkum hjá okkur. Það var kveikjan að veisluþjónustunni sem við opnum í dag. Veislubakkarnir eru fjölbreyttir, gómsætir og á góðu verði sem skiptir okkur miklu máli. Við hugsuðum einnig mikið út í útlit bakkanna og öll smáatriði. Okkar hugmynd er sú að viðskiptavinurinn þurfi einfaldlega að leggja fallegan bakka á borðið og segja „gjörið þið svo vel“. Við erum spennt að fylgjast með þróun Veislurétta og hvernig þessi nýja viðbót okkar muni blómstra“ segir Eva Laufey Kjaran markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups.