Hrekkjavöku ostabakki með beinagrind

22. Október 2026

Hrekkjavöku ostabakki með beinagrind

Það eru margir með einhvers konar partý á Hrekkjavökunni. Ostabakkar slá alltaf í gegn og því ekki gera hann í beinagrind til að draga fram ekta hrekkjavökustemmingu! Smelltu hér til að sjá myndband.

Hrekkjavöku ostabakki með beinagrind
- 1 x plastbeinagrind
- 1 x beinagrindarkerti
- 1 x köngulóarskál
- Litlar gervi köngulær
- Ostar að eigin vali en gott að nota Höfðingja fyrir drauginn og gaman að hafa mexíkóost - fyrir appelsínugula litinn
- Salling kex (blandað)
- Terre Ducali salami og hráskinka (fyrir innyfli)
- Hrekkjavökusnakk að eigin vali
- Chili hnetur
- Salling hnetublanda
- Papriku og chilisulta frá Hagkaup
- Bláberjasulta til að setja inn í augun á drauginum
- Ávextir að eigin vali (ég var með vínber, granatepli, ferskar fíkjur og hindber)
- Súkkulaðihúðaðar ólífur
- Lakkrísdöðlur
- Drakúla brjóstsykur
- Draugatrítlar
- Rjómasúkkulaði og súkkulaðirúsínur

Byrjið á því að koma beinagrindinni fyrir á löngum bakka eða bara beint á bökunarpappír á borðinu ef þið eigið ekki langan bakka. Stillið köngulóarskálinni, kertinu og fleiri litlum skálum upp hér og þar. Skerið ostana niður og gerið allt hráefni tilbúið.

Útbúið draug úr Höfðingjanum með því að skera aðeins af hliðunum að neðan og síðan skafa aðeins upp úr augum og munni og fylla með bláberjasultu. Raðið salami og hráskinku undir rifbeinin sem innyflum og svo restinni af hráefnunum eins og hugurinn girnist um allan bakka. Skreytið að lokum með nokkrum gervi köngulóm.

Höfðingi hentar vel fyrir einfaldan draug. Takið aðeins af hliðunum að neðan og skerið síðan út fyrir augum og munni og skafið aðeins uppúr ostinum. Fyllið síðan þar í með bláberjasultu.

Þetta verður ekki mikið einfaldara og skemmtilegra en þessi bakki fyrir næsta Halloween partý!