
20. Október 2026
NORR Energy Gum – nýtt íslenskt vörumerki í Hagkaup
NORR Energy Gum er nýtt íslenskt vörumerki sem er nú fáanlegt í öllum verslunum Hagkaups. Fyrsta vara fyrirtækisins er sykurlaust orkutyggjó með koffíni og B12-vítamíni.
Að baki NORR standa hjónin Lena Rut Kristjánsdóttir og Hörður Jens Guðmundsson. Hugmyndin að vörumerkinu kviknaði þegar þau fóru að velta því fyrir sér hvort hægt væri að bjóða upp á einfaldari og handhægari leið til að neyta koffíns, án þess að þurfa að drekka kaffi eða orkudrykki.
Úr varð NORR Energy Gum, orkutyggjó sem auðvelt er að hafa með sér og nota við ýmsar aðstæður, hvort sem er í vinnunni, á ferðinni eða við hreyfingu.
Fyrsta varan, NORR Energy Gum – Arctic Mint, inniheldur 50 mg af koffíni í hverju tyggjói ásamt B12-vítamíni. Varan er sykurlaus og kemur í litlum, handhægum pakkningum.
NORR hlaut stuðning frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga, sem hefur verið mikilvægur liður í að koma vörunni á íslenskan markað.
Markmið stofnenda er að byggja upp íslenskt vörumerki á sviði virknityggjós. NORR Energy Gum er fyrsta varan, en til framtíðar er stefnt að því að þróa fleiri tegundir, meðal annars tyggjó með mismunandi vítamínum og öðrum virkum innihaldsefnum.
NORR Energy Gum – Arctic Mint fæst nú í öllum verslunum Hagkaups.
Nánari upplýsingar á norrgum.is.
