Uppfærsla

Verið er að uppfæra vefinn sem gæti valdið tímabundnum truflunum. Þökkum fyrir þolinmæðina.

Nutella bollur með ljúffengri rjómafyllingu

9. Febrúar 2026

Nutella bollur með ljúffengri rjómafyllingu

Nutella fylling
500 ml rjómi 3 msk nutella + meiri Nutella sem er smurt á hverja bollu, magn eftir smekk.
1 msk sykur

Aðferð
Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt, smyrjið bollurnar með Nutella og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.

Glassúr
4 dl flórsykur
3 msk kakó
1 tsk vanilludropar
3 – 4 msk mjólk
Mulið Snickers til skrauts.

Aðferð
Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum. Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni. Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og sáldrið smátt söxuðu Snickers yfir.