Afhending pantana gæti tekið aðeins lengri tíma vegna Risa Tax Free. Takk fyrir þolinmæðina!

Risa Tax free er hafið í Hagkaup

29. Október 2026

Risa Tax free er hafið í Hagkaup

Risa Tax free er hafið og stendur til 4. nóvember. Í heila viku færðu Tax free afslátt af snyrtivörum, leikföngum, spilum, búsáhöldum, fatnaði, skóm og fleiri sérvörum.

Þetta er fullkominn tími til að endurnýja uppáhalds snyrtivörurnar, byrja á jólagjöfunum og gera heimilið klárt fyrir aðventuna. Hér förum við yfir það helsta sem er í boði.

Uppáhalds snyrtivörurnar á Tax free
Snyrtivörurnar eru alltaf vinsælastar á Tax free, og ekki að ástæðulausu. Nú er aldeilis rétti tíminn til að fylla á húð- og snyrtivörurnar, prófa nýjan ilm eða kaupa förðunarvörurnar sem hafa verið á óskalistanum. Úrvalið nær yfir húðvörur, förðunarvörur, ilmvötn og hárvörur frá fjölda vinsælla merkja.

Skoða allar snyrtivörur

Nýju jólagjafasettin eru byrjuð að streyma inn í verslanir og eru alltaf vinsælir í jólapakkann. Í hverjum kassa eru vandlega valdar vörur í fallegum umbúðum, tilbúnar undir jólatréð.

Byrjaðu jólagjafainnkaupin snemma
Risa Tax free er frábært tækifæri til að klára jólagjafirnar áður en jólaösin hefst. Í leikfangadeildinni finnurðu gjafir fyrir börn á öllum aldri, allt frá kubbum og dúkkum til útileikfanga og föndurs.

Spil eru líka sígild jólagjöf sem öll fjölskyldan nýtur. Hvort sem það eru fjölskylduspil, partíspil eða spil fyrir litlu krakkana, þá er gott spil frábær leið til að eiga notalega stund saman yfir hátíðirnar.

Gerðu heimilið klárt fyrir aðventuna
Jólabaksturinn nálgast og þá er gott að eiga réttu áhöldin. Á Tax free færðu afslátt af bökunarformum, pottum, pönnum, eldhústækjum og öllu því sem þarf til að gera eldhúsið tilbúið fyrir hátíðirnar.

Í sérvörunum leynast líka fallegar gjafir og hlutir fyrir heimilið, sem gera aðventuna enn notalegri.

Risa Tax Free stendur aðeins í eina viku, svo nú er rétti tíminn til að kíkja til okkar. Hlökkum til að sjá ykkur í verslunum okkar!

Hlökkum til að sjá ykkur!