31. Maí 2024
Sumarlegt kartöflusalat
Helga Magga bjó til einstaklega gott og næringarríkt kartöflusalat sem hún segir vera gott meðlæti með öllum mat, sérstaklega grillmatnum.
Innihald:
800 g kartöflur
180 g grísk jógúrt
2 msk sinnep frá Svövu
2 msk hunang
Safi úr einni sítrónu
hálfur skallottlaukur 50 g
2-3 litlar súrar gúrkur 130 g
Hálft granatepli 80 g
150 g grillostur frá MS
Ferskt dill eftir smekk niðurskorið
Salt og pipar
Þú byrjar á því að sjóða kartöflurnar í um 20 mínútur og kæla þær svo. Á meðan er innihaldsefnunum blandað saman í skál, laukurinn skorinn smátt niður ásamt súru gúrkunum og dillinu. Vatninu er svo hellt af kartöflunum og þær látnar kólna örlítið. Skornar í hæfilega bita og þeim blandað út í skálina. Grillosturinn er rifinn niður með rifjárni og hann svo grillaður á pönnu, fínt að grilla hann í tveimur hollum á pönnunni svo hann festist ekki allur saman. Í lokin er grillaða grillostinum blandað saman við salatið og gott að skilja smá eftir af bæði grillosti og granatepla fræjum til að skreyta salatið með.