26. Apríl 2024
Vel heppnað Danskt sumarkvöld með GOSH
Síðastliðinn mánudag var Danskt sumarkvöld með GOSH Copenhagen í Hagkaup Smáralind. Kvöldið var virkilega vel sótt og heppnaðist vel. Á þessu skemmtilega kvöldi sem var hluti af dagskrá Danskra daga í Hagkaup sýndi förðunarfræðingurinn Sara Björk Þorsteinsdóttir gestum falleg förðunar trend fyrir sumarið með vörum frá GOSH en Sara hefur unnið með merkinu í að verða þrjú ár.
Sara fór yfir skemmtileg trend á borð við balletcore makeup, 90s augabrúnir og varir ásamt skemmtilega sumar trendinu pop of colour en öll þessi trend hafa verið stór á samfélagsmiðlum undanfarið. Þar að auki kynnti Sara gestum fyrir vörumerkinu Gosh Copenhagen og þeim vörum sem vörumerkið hefur upp á að bjóða.
,,Við höfum verið að prófa okkur áfram með förðunarnámskeið í bland við aðra viðburði hér í Hagkaup og okkur finnst þetta virkilega skemmtileg viðbót við þá þjónustu sem við bjóðum viðskiptavinum okkar. Námskeiðið var gestum að kostnaðarlausu og mikil ánægja með kennsluna hjá Söru“ segir Lilja Gísladóttir markaðsfulltrúi Hagkaups.
Viðstaddir voru mjög áhugasamir og ánægðir með námskeiðið en að loknu námskeiði gafst fólki tækifæri til þess að fá ráðgjöf og fræðslu frá sérfræðingum GOSH.
,,Við stukkum á tækifærið að vera með á Dönskum dögum. GOSH er danskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir mjög stóran hluta af sínum vörum í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið hefur um árabil framleitt frábærar förðunarvörur og í kvöld vörum við að frumsýna nýjar húðvörur frá merkinu sem við erum virkilega spennt að kynna betur fyrir Íslendingum“ segir Natalie Kristín Hamzehpor vörumerkjastjóri GOSH á Íslandi.
,,Við erum virkilega þakklát okkar viðskiptavinum fyrir viðtökurnar á þeim viðburðum sem við höfum haldið síðustu misseri og þetta er klárlega eitthvað sem við munum gera meira af í framtíðinni“ segir Lilja ánægð með vel heppnað kvöld.
Dönskum dögum lýkur formlega í Hagkaup 28. apríl, en þangað til eru allar vörur frá GOSH á 20% afslætti í verslunum Hagkaups og á hagkaup.is.
Allir gestir gengu út með gjafapoka frá Inness fulla af sælgæti frá Toms.